Ég er námsráðgjafi í grunnskóla. Í skólanum koma oft upp mál er varða til dæmis líðan nemenda, félagstengsl, stríðni og nám. Nýlega vann ég verkefni í tengslum við stríðni vegna útlits sem mig langar að deila með ykkur.
Kennari hafði áhyggjur af stríðni nokkurra nemenda vegna holdafars eins skólafélaga. Stríðnin virtist hafa slæm áhrif á líðan allra sem að málinu komu. Kennarinn óskaði því eftir aðstoð minni og vildi stöðva stríðnina og um leið bæta líðan og líkamsmynd nemenda.
Við fórum af stað með verkefni og fræðslu í bekknum. Nemendur áttu að velta fyrir sér kostum við mismunandi útlit. Ákveðið útlit var tekið fyrir í einu og kostir eða jákvæðir eiginleikar þess útlits kortlagðir til að mynda kostir þess að vera hávaxinn, lágvaxinn, grannur eða feitur. Þegar nemendur voru búnir að nefna marga jákvæða eiginleika eða kosti áttu þeir að nefna fyrirmyndir sem pössuðu inn í hvern flokk. Sem dæmi má nefna það að ef nemendur nefndu að þeir sem væru hávaxnir gætu orðið góðir í körfubolta hentaði vel að nefna góðan körfuboltaleikmann sem fyrirmynd.
Dæmi um verkefni nemenda:
Hávaxinn |
Lágvaxinn |
Grannur |
Feitur |
Kostir:
Góður í körfubolta Góður í fótbolta Góður í handbolta Góður í marki Getur hjálpað öðrum t.d. náð í hluti sem eru hátt uppi Góður í frjálsum íþróttum Sterkur Sér vel á tónleikum Góður leikari Góður söngvari |
Kostir:
Góður í dansi Góður í fimleikum Getur falið sig vel í feluleik Góður í handbolta Góður í fótbolta Góður í marki Góður í frjálsum íþróttum Góður í ballet Góður söngvari Góður leikari Liðugur Góð barnapía |
Kostir:
Góður í fimleikum Góður í ballet Góður í karate Kemst á milli þröngra staða Góður í að fela sig í feluleik Góður í frjálsum íþróttum Liðugur Góður í jazzballet Lipur Góður söngvari Góður leikari |
Kostir:
Sterkur Góður í fótbolta Góður í marki Góður í handbolta Góður í glímu Góður í karate Góður söngvari Góður leikari Góður í lyftingum Góður í frjálsum íþróttum Góður í júdó Góður í boxi Góður í Taekwondo |
Fyrirmyndir:
Ólafur Stefánsson Nicole Kidman Uma Thurman Jón Arnór Stefánsson Liv Tyler
|
Fyrirmyndir:
Justin Bieber Bjarki Sigurðsson Gróttu stelpurnar Tom Cruise Johnny Galecki |
Fyrirmyndir:
Justin Bieber Gróttu stelpurnar Karate Kid Kári Steinn Selena Gomez |
Fyrirmyndir:
Adele Ólafur Darri Margir júdómenn Auðunn Jóns. Christina Aguilera Lauren í Glee |
Út frá verkefninu urðu skemmtilegar umræður. Til að mynda fannst nemendum áhugavert að sjá hve marga góða kosti útlitin áttu sameiginleg t.d. að vera góður í frjálsum íþróttum. Nemendur nefndu að það vera feitur eða grannur hafði lítið um það að segja hvort viðkomandi gæti orðið góður í frjálsum íþróttum. Nemendur voru líka allir meðvitaðir um það að allar tegundir útlits ættu að þykja eðlilegar og fallegar þar sem við fæðumst ólík. Sumir eru dökkhærðir, aðrir ljóshærðir, sumir verða hávaxnir meðan aðrir verða lágvaxnir. Þetta er ómögulegt að breyta og eitthvað sem enginn ætti að stríða öðrum vegna. Nemendur voru sammála um að það sama á við þegar kemur að holdafari.
Ég vil hvetja alla kennara til að prófa verkefnið. Það stuðlar að umræðu meðal nemenda um kosti hvers og eins. Um leið hvetur verkefnið nemendur sem og okkur starfsmenn skólanna til að fagna fjölbreytileikanum.
Elva Björk Ágústsdóttir. Námsráðgjafi/MS í sálfræði