Ég er námsráðgjafi í grunnskóla. Í skólanum koma oft upp mál er varða til dæmis líðan nemenda, félagstengsl, stríðni og nám. Nýlega vann ég verkefni í tengslum við stríðni vegna útlits sem mig langar að deila með ykkur.
Kennari hafði áhyggjur af stríðni nokkurra nemenda vegna holdafars eins skólafélaga. Stríðnin virtist hafa slæm áhrif á líðan allra sem að málinu komu. Kennarinn óskaði því eftir aðstoð minni og vildi stöðva stríðnina og um leið bæta líðan og líkamsmynd nemenda.
Við fórum af stað með verkefni og fræðslu í bekknum. Nemendur áttu að velta fyrir sér kostum við mismunandi útlit. Ákveðið útlit var tekið fyrir í einu og kostir eða jákvæðir eiginleikar þess útlits kortlagðir til að mynda kostir þess að vera hávaxinn, lágvaxinn, grannur eða feitur. Þegar nemendur voru búnir að
nefna marga jákvæða eiginleika eða kosti áttu þeir að nefna fyrirmyndir sem pössuðu inn í hvern flokk. Sem dæmi má nefna það að ef nemendur nefndu að þeir sem væru hávaxnir gætu orðið góðir í körfubolta hentaði vel að nefna góðan körfuboltaleikmann sem fyrirmynd.
Dæmi um verkefni nemenda:
Hávaxinn
|
Lágvaxinn
|
Grannur
|
Feitur
|
Kostir:
Góður í körfubolta
Góður í fótbolta
Góður í handbolta
Góður í marki
Getur hjálpað öðrum t.d. náð í hluti sem eru hátt uppi
Góður í frjálsum íþróttum
Sterkur
Sér vel á tónleikum
Góður leikari
Góður söngvari |
Kostir:
Góður í dansi
Góður í fimleikum
Getur falið sig vel í feluleik
Góður í handbolta
Góður í fótbolta
Góður í marki
Góður í frjálsum íþróttum
Góður í ballet
Góður söngvari
Góður leikari
Liðugur
Góð barnapía |
Kostir:
Góður í fimleikum
Góður í ballet
Góður í karate
Kemst á milli þröngra staða
Góður í að fela sig í feluleik
Góður í frjálsum íþróttum
Liðugur
Góður í jazzballet
Lipur
Góður söngvari
Góður leikari |
Kostir:
Sterkur
Góður í fótbolta
Góður í marki
Góður í handbolta
Góður í glímu
Góður í karate
Góður söngvari
Góður leikari
Góður í lyftingum
Góður í frjálsum íþróttum
Góður í júdó
Góður í boxi
Góður í Taekwondo |
Fyrirmyndir:
Ólafur Stefánsson
Nicole Kidman
Uma Thurman
Jón Arnór Stefánsson
Liv Tyler
|
Fyrirmyndir:
Justin Bieber
Bjarki Sigurðsson
Gróttu stelpurnar
Tom Cruise
Johnny Galecki |
Fyrirmyndir:
Justin Bieber
Gróttu stelpurnar
Karate Kid
Kári Steinn
Selena Gomez |
Fyrirmyndir:
Adele
Ólafur Darri
Margir júdómenn
Auðunn Jóns.
Christina Aguilera
Lauren í Glee |
Út frá verkefninu urðu skemmtilegar umræður. Til að mynda fannst nemendum áhugavert að sjá hve marga góða kosti útlitin áttu sameiginleg t.d. að vera góður í frjálsum íþróttum. Nemendur nefndu að það vera feitur eða grannur hafði lítið um það að segja hvort viðkomandi gæti orðið góður í frjálsum íþróttum. Nemendur voru líka allir meðvitaðir um það að allar tegundir útlits ættu að þykja eðlilegar og fallegar þar sem við fæðumst ólík. Sumir eru dökkhærðir, aðrir ljóshærðir, sumir verða hávaxnir meðan aðrir verða lágvaxnir. Þetta er ómögulegt að breyta og eitthvað sem enginn ætti að stríða öðrum vegna. Nemendur voru sammála um að það sama á við þegar kemur að holdafari.
Ég vil hvetja alla kennara til að prófa verkefnið. Það stuðlar að umræðu meðal nemenda um kosti hvers og eins. Um leið hvetur verkefnið nemendur sem og okkur starfsmenn skólanna til að fagna fjölbreytileikanum.
Elva Björk Ágústsdóttir. Námsráðgjafi/MS í sálfræði